Jafn­réttis- og jafn­launa­stefna

Tilgangur og markmið jafn­rétt­is­stefnu VÍS er að stuðla að jafn­rétti kynj­anna í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynj­anna nr. 150/2020 og aðrar kröfur sem VÍS undir­gengst í jafn­launa­kerfi sínu, þar með talið að greidd séu sambærileg laun fyrir sömu eða jafn­verðmæt störf, þannig að kynbundinn launamunur mælist ekki hjá félag­inu. Stefnan nær til alls starfs­fólks VÍS.

VÍS leggur áherslu á jafn­rétti kynj­anna og að nýta til jafns styrk­leika starfs­fólks óháð kyni þannig að hæfi­leikar og færni alls mannauðs félagsins njóti sín sem best og er það skjalfest með stefnu þess­ari. Stefna VÍS er að vera vinnu­staður þar sem hver einstak­lingur er metinn að verð­leikum eftir hæfni og frammi­stöðu. Einnig að starfs­fólk hafi jöfn tæki­færi til þess að axla ábyrgð og sinna verk­efnum óháð kyni. VÍS skuld­bindur sig til að vinna að jafn­rétt­is­málum, hafa frum­kvæði í þeim og sýna þannig samfé­lags­ábyrgð. VÍS fylgir lögum, reglum og samn­ingum sem snerta jafn­rétt­ismál og gilda á hverjum tíma. Megin­markmið í jafn­rétt­is­málum hjá félaginu eru:

  • VÍS greiðir starfs­fólki jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafn­verðmæt störf óháð kyni.

  • VÍS er vinnu­staður þar sem allt starfs­fólk á jafna mögu­leika óháð kyni.

  • VÍS leggur áherslu á að starfs­fólk njóti sömu tæki­færa til starfs­þjálf­unar og fræðslu óháð kyni.

  • VÍS er fjöl­skyldu­vænn vinnu­staður þar sem starfs­fólk getur samræmt vinnu og einka­líf.

  • VÍS er vinnu­staður þar sem kynbundin- kynferð­isleg áreitni, ofbeldi eða einelti líðst ekki.

Með kyni í stefnu þessari er átt við konur, karla og fólk með hlut­lausa skrán­ingu kyns í þjóð­skrá nema annars sé sérstak­lega getið.

Leið að markmiði