Hvernig virkar Ökuvísir?

Ökuvísir er app sem inni­heldur lögboðna ökutækja­trygg­ingu og bílrúðu­trygg­ingu og þú getur einnig bætt við kaskó­trygg­ingu.

Ef þú vilt vita hvernig Ökuvísir virkar er best að prófa appið. Þú getur keypt Ökuvísi strax í appinu eða prófað í 14 daga, án skuld­bind­inga.

Ef þú ákveður að kaupa Ökuvísi verður að tengja lítinn kubb við appið. Kubburinn mælir akst­urslag þitt og gefur þér einkunn sem byggir á hraða, hröðun, hraða í beygjum, hemlun og síma­notkun undir stýri. Kubburinn tryggir líka að Ökuvísis appið mæli ekki ferðir nema það tengist kubbnum. Því færðu ekki skráðar ferðir á þig þegar þú ferðast með öðrum bíl nema þeim bíl sem er með kubb­inn.

Þegar þú kaupir Ökuvísi færðu kubbinn sendan heim til þín innan fárra daga. Leið­bein­ingar eru í kass­anum sem fylgir kubbnum um hvernig þú tengir kubbinn við appið en einnig leið­beinir appið þér skref fyrir skref. Kubburinn er límdur í framrúðu bíls­ins, fyrir aftan baksýn­is­speg­il­inn.

Kubburinn tengdur við Ökuvísi:

  • Þú byrjar á því að vera með símann þinn og kubbinn fyrir framan þig.

  • Þú ferð í prófílinn þinn í appinu og velur „Tengja kubb­inn“.

  • Þú velur hvaða bíl á að tengja – ef þú ert með iPhone þarftu að endur­ræsa appið eftir að bíllinn er valinn og fara aftur á sama stað.

  • Smelltu á takkann á kubbnum. Það dugar að ýta einu sinni.

  • Smelltu á „Byrja að tengja“ í appinu.

  • Ef ljósið blikkar þá tókst að tengja og þú velur „Blikk­ar“, ef það tókst ekki velur þú „Blikkar ekki“ og reynir aftur.

  • Þegar tenging er komin á er ekkert eftir nema að líma kubbinn á framrúðuna fyrir aftan baksýn­is­speg­il­inn.