Hlut­hafa­fundir

2024

Aðal­fundur VÍS 21. mars 2024

Stjórn Vátrygg­inga­fé­lags Íslands hf. boðar til aðal­fundar í félaginu sem haldinn verður í höfuð­stöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykja­vík, fimmtu­daginn 21. mars 2024, auk þess sem gefinn er kostur á rafrænni þátt­töku á fund­inum. Fund­urinn hefst kl. 16.00.

Hlut­hafar eða umboðs­menn hlut­hafa sem hafa hug á því að sækja fund­inn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig á skrán­ing­ar­síðu fund­ar­ins.

Frestur til að skrá sig er til kl. 16:00 þann 19. mars 2024, eða tveimur dögum fyrir fund­ar­dag. Með innskrán­ingu þarf að fylgja mynd af skil­ríkjum og umboð, ef við á. Atkvæð­is­réttur hlut­hafa á fund­inum fer eftir fjölda hluta á því tíma­marki þegar skrán­ing­ar­fresti lýkur.

Ef einhverjar spurn­ingar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur. Sendu okkur tölvu­póst á fjar­festa­tengsl@skag­i.is og við svörum fljótt og vel.

Hlut­hafa­fundur 17. janúar 2024

Stjórn Vátrygg­inga­fé­lags Íslands hf. boðar til hlut­hafa­fundar í félaginu sem haldinn verður í höfuð­stöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykja­vík, miðviku­daginn 17. janúar 2024. Fund­urinn hefst kl. 16.00.

Hlut­hafar eða umboðs­menn hlut­hafa sem hafa hug á því að sækja fund­inn, eru beðnir um að skrá sig á vefsíð­unni Lumi.

Frestur til að skrá sig er til kl. 16.00 þann 15. janúar 2024, eða tveimur dögum fyrir fund­ar­dag. Með innskrán­ingu þarf að fylgja mynd af skil­ríkjum og umboð, ef við á. Ef einhverjar spurn­ingar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur. Sendu okkur tölvu­póst á fjar­festa­tengsl@vis.is og við svörum fljótt og vel.