Stjórn VÍS
Haraldur I. Þórðarson
Stjórnarmaður
Haraldur tók sæti í stjórn VÍS í nóvember 2024.
Menntun: MBA gráða frá IESE í Barselóna og BS gráða í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og próf í verðbréfaviðskiptum frá sama skóla.
Aðalstarf: Forstjóri Skaga
Starfsreynsla: Einn af stofnendum Fossa fjárfestingabanka og forstjóri hans 2015-2023. Framkvæmdastjóri markaðsviðskipta Straums fjárfestingabanka hf. 2011-2015. Framkvæmdastjóri fjárstýringar Exista hf. 2007-2010 og forstjóri fjármögnunar frá árinu 2006. Áður starfaði Haraldur í fjárstýringu Kaupþings banka hf. frá 2003-2006.
Önnur stjórnarseta: Fossar fjárfestingarbanki hf., Viðskiptaráð Íslands, NASF á Íslandi, Hrafn ehf., H3 ehf.
Óhæði: Haraldur telst háður félaginu sem forstjóri Skaga.
