Hoppa yfir valmynd

Hvað er greiðslufrelsi?

Greiðslufrelsi er innifalið í ákveðnum líf- og heilsutryggingum okkar.

Í sinni einföldustu mynd þýðir greiðslufrelsi að VÍS greiðir fyrir trygginguna þína.

  • Ef þú ert metinn til örorku getur þú sótt um greiðslufrelsi frá líf- og sjúkdómatryggingum þínum. Það þýðir að þú borgar af tryggingunum í hlutfalli við örorku þína, án þess að tryggingarnar skerðist.
  • Greiðslufrelsi í líf- og sjúkdómatryggingu getur varað í allt að 5 ár, þó ekki lengur en til 65 ára aldurs tryggingartaka.
  • Í barnatryggingu VÍS er greiðslufrelsi háttað svo að ef tryggingartaki, yngri en 65 ára, fellur frá á meðan trygging er í gildi, greiðir VÍS fyrir trygginguna þar til barn verður 20 ára og tryggingin fellur úr gildi.

Hafðu endilega samband við okkur ef eitthvað er óljóst og við aðstoðum þig með ánægju.