Forvarna­þjón­usta

Öllum fyrir­tækjum sem eru í trygg­ingum hjá okkur býðst ákveðin forvarna­þjón­usta í samræmi við umfang viðskipta ásamt því að vera boðið á stærsta forvarna­við­burð sem haldinn er hér á landi á hverju ári eða Forvarna­ráð­stefnu VÍS.

Breidd fyrir­tækja sem tryggja hjá okkur er mikil. Forvarnir eru nauð­syn­legar hjá þeim öllum og lítum við svo á að eitt af hlut­verkum okkar er að aðstoða þau við að auka öryggi hjá sér með það markmið að fækka tjónum og slysum og um leið auka fjár­hags­legan ávinning sinn.

Rafræn forvarna­fræðsla

Minni og meðal­stór fyrir­tæki fá senda reglu­lega fræðslu þar sem leitast er við að snerta flesta þætti sem snúa að örygg­is­málum fyrir­tækja t.a.m. vinnu­vernd, húsnæði, umferð og skrán­ingu atvika og verka.

Fyrir­tæki geta sent inn ábend­ingar um fræðslu sem þeim finnst vanta á forvarn­ir@vis.is

Stöðumat fyrir­tækja

Stærri fyrir­tækjum stendur til boða að fá starfs­mann VÍS í heim­sókn til að fram­kvæma stöðumat fyrir­tækja. Það veitir stjórn­endum góða sýn yfir stöðu örygg­is­mála og forvarna í starf­sem­inni.

  • Með stöðumati geta stærri fyrir­tæki og fyrir­tæki í áhættu­sömum rekstri séð hvar þau standa í öryggis- og forvarna­málum.

  • Full­trúi VÍS kemur í vett­vangs­skoðun og tekur vinnu­staðinn út í samvinnu við atvinnu­rek­and­ann.

  • Ákveðnir forvarna­þættir eins og örygg­ismál starfs­manna, innbrotsvarnir, bruna­varnir og umgengn­ismál eru metnir með stöðl­uðum gátlista.

  • Í kjöl­farið fær fyrir­tækið ákveðna forvarna­ein­kunn ásamt yfir­liti um stöðu þess í öryggis- og forvarna­málum og ef tæki­færi eru til úrbóta er bent á þau.