Fornbílar
Við veitum fornbílaeigendum sérkjör á ábyrgðar- og kaskótryggingum fornbíla. Til að eiga rétt á fornbílatryggingu þurfa ákveðin skilyrði að vera uppfyllt.
Bíllinn þarf að vera skráður sem fornbifreið í ökutækjaskrá.
Árlegur akstur má ekki vera umfram 2.000 km.
Bíllinn þarf að vera í sýningarhæfu ástandi.
Eigandi þarf að vera með aðra bifreið í almennri notkun tryggða hjá VÍS.
Ekki er veitt fornbílatrygging á jeppa og atvinnubifreiðar, óháð skráningu í ökutækjaskrá.
