Bílrúðutjón
Flestir viðskiptavina okkar sem eru með lögboðna ökutækjatryggingu eru einnig með bílrúðutryggingu sem er valkvæð vernd. Tryggingin bætir tjón á framrúðu, afturrúðu og hliðarrúðum ökutækis. Topplúgur og glerþök bíla eru undanskilin í bílrúðutryggingu.
Að forða frekari tjóni
Ef svo óheppilega vill til að þú færð stjörnu í bílrúðuna, t.d. eftir steinkast, er mikilvægt að setja bílrúðulímmiða á skemmdina sem fyrst. Passa verður að líma á hreina og þurra rúðu.
Bílrúðulímmiðinn heldur vatni og óhreinindum frá sprungunni og eykur líkurnar á því að hægt sé að gera við bílrúðuna þér að kostnaðarlausu þar sem engin eigin áhætta er greidd af bílrúðuviðgerðum.
Viðgerð á bílrúðunni er bæði umhverfisvænni og hagstæðari kostur en bílrúðuskipti.
Hægt er að fá bílrúðulímmiða í VÍS appinu og á þjónustuskrifstofum okkar um land allt.

Bílrúðuviðgerð eða bílrúðuskipti?