Áhættumat líf- og heilsu­trygg­inga

Þegar þú sækir um líf- og heilsu­trygg­ingar þarftu að fylla út umsókn þar sem þú þarft meðal annars að svara spurn­ingum er varða heilsufar þitt, fjöl­skyldu­sögu og hvort þú stundir áhættu­samar tómstundir. Allar umsóknir fara að því loknu í gegnum áhættumat hjá okkur.

Í áhættumati er farið eftir ströngum verk­ferlum. Verk­ferl­arnir eru sífellt í endur­skoðun eftir því sem rann­sóknum á sviði heil­brigð­is­vís­inda fleygir fram. Verk­ferl­arnir eru ekki aðgengi­legir umsækj­endum.

Í áhættumats­ferlinu getur verið nauð­syn­legt að afla frekari upplýs­inga varð­andi heilsufar þitt frá lækni þínum eða sjúkra­stofnun. Það er þó aldrei gert nema að fá undir­ritað samþykki frá þér. Heilsu­fars­skoðun getur líka verið nauð­synleg í sumum tilfellum.

Niður­staða áhættumats getur leitt til sérskil­mála, álags sem felur í sér hærra verð á trygg­ing­unni eða synj­un­ar.  

Hér getur þú séð hvað getur haft áhrif á niður­stöðu áhættumats­ins. Upptaln­ingin er ekki tæmandi.

  • Reyk­ingar, þar með taldar rafsíga­rettur og veip

  • Þyngd

  • Hækk­aður blóð­þrýst­ingur

  • Sykur­sýki

  • Geðsjúk­dómar

  • Meðfæddir sjúk­dómar

  • Krabba­mein

  • Áfengis- og vímu­efna­vandi

  • Fjöl­skyldu­saga

  • Einka­flug, köfun, akst­ursí­þróttir, fall­hlíf­a­stökk

Hafðu samband eða kíktu í heim­sókn ef þú hefur einhverjar spurn­ingar — við aðstoðum þig með ánægju.