Hoppa yfir valmynd

Aðgangsheimildir

Tryggingatakar geta til dæmis veitt maka, umboðshafa, endurskoðanda eða bókara aðgang að tryggingaupplýsingum sínum með því að skrá sig inn á vis.is og velja aðgangsheimildir.

Þeir sem fá aðgangsheimild að tryggingaupplýsingum geta skráð sig inn á vis.is með rafrænum skilríkjum og farið auðveldlega milli þeirra aðganga sem þeir hafa fengið.

Hægt er að veita skoðunarheimild eða fulla heimild. Ef full heimild er veitt getur viðkomandi framkvæmt allar aðgerðir, þar á meðal tilkynnt tjón og breytt tryggingavernd, fyrir hönd tryggingataka. Hægt er að velja um ótímabundna eða tímabundna heimild.

Endilega hafðu samband ef eitthvað er óljóst, við aðstoðum þig með ánægju.

Aðgangur að tryggingaupplýsingum fyrirtækis, sveitarfélags eða stofnunar
Aðgangur að tryggingaupplýsingum einstaklings
Skýringarmynd

Á síðunni aðgangsheimildir hefur þú yfirsýn yfir allar aðgangsheimildir sem þú hefur veitt.