Hleð spilara!

Viðbótarbrunatrygging

Húseigendur sem telja að brunabótamat húseignarinnar dugi ekki til endurbyggingar eftir tjón geta óskað eftir viðbótarbrunatryggingu.


Tryggingin er hentugur kostur fyrir þá sem hafa staðið í verulegum endurbótum á húseigninni og vilja hækka brunabótamat húseignarinnar umfram það sem Fasteignaskrá Íslands hefur gefið út. Viðbótarbrunatrygging er einnig fyrir þá sem telja að núverandi brunabótamat sé ekki næginlegt fyrir endurbótum ef til tjóns kemur. Æskilegt er að láta meta eignina svo að lögboðið brunabótamat sé rétt.

Skilyrði til bóta er að tjón sé umfram það sem lögboðna brunabótamatið segir til um.

Þessi trygging er eingöngu seld sem viðbót við gilda brunatryggingu húseignar hjá VÍS.