Hleð spilara!
Húseigendatrygging
Tryggir húseignina fyrir tjónum á borð við vatnstjón innan veggja hússins, rúðubrot, hrun á innréttingum, brot á hreinlætistækjum, brot á keramikhelluborði, skemmdir vegna innbrots o.fl.
Húseigendatryggingin veitir víðtæka vernd gegn óvæntum og skyndilegum atburðum sem geta orðið. Oft á tíðum geta þessi tjón verið mjög kostnaðarsöm og þeim fylgt mikil óþægindi.
Tryggingin bætir tjón sem verða á húseigninni sjálfri. Þetta geta verið tjón af völdum vatnsleka á lögnum sem á upptök sín innan veggja hússins. Húseigendatryggingin bætir einnig tjón vegna innbrota eða innbrots tilrauna, rúðubrot, brot á innréttingum, hreinlætistækjum og keramikhelluborðum. Sé nauðsynlegt að flytja úr íbúðarhúsnæði er greiddur afnotamissir á meðan viðgerð stendur. Í tryggingunni er einnig ábyrgðartrygging sem bætir tjón þriðja aðila og málskostnaðartrygging sem greiðir málskostnað vegna ágreining í tilteknum einkamálum.
- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
