Hoppa yfir valmynd
Fréttasafn  | 28.11.2019

VÍS afhenti Slysavarnaskóla sjómanna hundraðasta flotgallann

Í dag tóku fulltrúar Slysavarnaskóla sjómanna á móti tíu nýjum flotgöllum frá VÍS og er þetta jafnframt í tíunda sinn sem tryggingafélagið gefur skólanum slíka galla. Allir flotgallar sem nemendur og kennarar skólans nota til að æfa björgun og meðferð björgunarbúnaðar eru frá VÍS.

Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS, fagnaði áfanganum í dag og lagði áherslu á þátt Slysavarnaskóla sjómanna í að stórfækka slysum á sjómönnum. „Hér er unnið frábært starf og það er okkur sérstök ánægja að halda upp á 10 ára farsælt samstarf sem hefur aukið öryggi sjómanna og fækkað slysum um borð hjá viðskiptavinum okkar í sjávarútvegi. Við hlökkum til að vinna með skólanum áfram og halda nemendum og kennurum á floti í nýjum og góðum göllum!“

Samstarfið við Slysavarnaskólann er liður í stóraukinni áherslu VÍS á öryggi sjómanna og forvarnir í sjávarútvegi. Flestir nemendur Slysavarnaskóla sjómanna eru starfandi á fiskiskipum en samkvæmt lögum þurfa sjómenn bæði grunnmenntun og reglulega endurmenntun í öryggismálum og fer bókleg og verkleg kennsla, til dæmis í meðferð björgunarbúnaðar, fram um borð í skólaskipinu Sæbjörgu.