Hoppa yfir valmynd
Fréttasafn  | 07.03.2019

Helmingi hjólbarða ábótavant

Meira en helmingur allra bíla er með of lítinn, mikinn eða mismikinn loftþrýsting í dekkjum samkvæmt nýrri könnun sem VÍS gerði á ástandi dekkja um 100 tjónabíla hjá sér. Þetta verður að teljast áhyggjuefni því loftþrýstingur hefur áhrif á stöðugleika, hemlunarvegalengd og þar af leiðandi almennt öryggi ökutækja.

Könnun VÍS leiddi einnig í ljós að of margir ökumenn eru ekki með nægjanlega góð dekk undir bílunum sínum. Til dæmis voru 14% ökutækja með hjólbarða sem höfðu minna en 3 mm dekkjamynstur, en 3 mm er það lágmarks viðmið sem sett hefur verið í reglum um mynstursdýpt yfir vetrartíma. Þá voru 8% ökutækja á sumardekkjum að hluta eða öllu leyti, þrátt fyrir að könnunin hafi verið gerð um hávetur.

VÍS hefur frá 2012 gert kannanir á dekkjabúnaði tjónabíla að vetri til og má sjá mikla breytingu til batnaðar sér í lagi eftir 2014 þegar reglur um mynstursdýpt hjólbarða yfir vetrartíma voru hertar.

Árið í fyrra kom mjög vel út miðað við fyrri kannanir en í ár er annað upp á teningnum því samkvæmt könnuninni sem gerð var núna í febrúar komu allar mælingar um ástand dekkja verr út en árið á undan.

Helstu niðurstöður könnunarinnar eru annars þessar:

  • 86% bíla var með dekkjamynstur yfir 3 mm var 92% í fyrra
  • 87% var með sömu tegund dekkja undir bílnum var 92% í fyrra
  • 8% var á sumardekkjum að hluta eða öllu leyti var 2% í fyrra
  • 53% var með of lítinn, mikinn eða misjafnan loftþrýsting í dekkjum var 43% í fyrra
  • 45% var á negldum dekkjum í ár
  • 45% á vetrar- og heilsársdekkjum og þar af 29% á dekkjum sem voru merkt bæði