Hoppa yfir valmynd
Fréttasafn  | 06.12.2018

Nýr tjónagrunnur tekinn í gagnið

Íslensku skaðatryggingafélögin fjögur mun frá og með 15. janúar næstkomandi hefja skráningar í nýjan tjónagrunn Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) sem hýstur er hjá Creditinfo.

Íslensku skaðatryggingafélögin fjögur mun frá og með 15. janúar næstkomandi hefja skráningar í nýjan tjónagrunn Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) sem hýstur er hjá Creditinfo. Grunnurinn verður m.a. nýttur til að sporna við skipulögðum tryggingasvikum en slík mál hafa komið upp að undanförnu í rannsóknum á brotum skipulagðra glæpahópa hér á landi. Að mati lögreglu þá hafa þessir hópar áttað sig á því að hér á landi sé tiltölulega auðvelt að svíkja út bætur.

Áætlað er að tryggingasvik á Íslandi geti á heildina litið numið nokkrum milljörðum króna á ári þó að erfitt sé að fullyrða um nákvæma tölu. Svik sem þessi leiða ótvírætt til útgjalda tryggingafélaga og ber almenningur þannig óbeint skaðann af tryggingasvikum. Á meðal þess sem verður hægt að sjá í tjónagrunninum er hvort sama tjón hafi fengist greitt út hjá fleiru en einu tryggingafélagi.

Upplýsingar um tjónagrunninn koma fram í uppfærðum skilmálum tryggingartaka. Í tjónagrunninn verða skráð þau tjón sem tilkynnt eru til tryggingafélaganna sem aðild eiga að grunninum, að undanskildum tjónum sem falla undir líf- og sjúkdómatryggingar. SFF eru rekstraraðili tjónagrunnsins en Creditinfo hefur verið ráðið til að vera vinnsluaðili grunnsins samkvæmt heimild frá Persónuvernd. Viðskiptavinir tryggingafélaganna geta nálgast upplýsingar um uppflettingar í tjónagrunninum á mínum síðum Creditinfo.