Hoppa yfir valmynd

VÍS á Vest­fjörðum

Verið hjartanlega velkominunderlinetil okkar á Ísafjörð. Það er óhætt að segja að VÍS á sér langa sögu á svæðinu og tryggir þar fjölda einstaklinga og fyrirtæki.

Heyrðu endilega í okkur ef þú vilt bætast í hóp ánægðra viðskiptavina, yfirfara verndina eða tilkynna tjón.

Fáðu verð í tryggingarnar þínar

Fylltu út formið og starfsmenn VÍS á Ísafirði verða í sambandi við þig.

Kíktu í kaffi

Það er okkur mikilvægt að bjóða viðskiptavinum okkar upp á frábæra þjónustu hvort sem það er með stafrænum leiðum, í síma eða á staðnum. Það er alltaf heitt á könnunni og ánægjulegt þegar bæjarbúar kíkja í heimsókn í spjall um daginn og veginn.

Við erum staðsett í Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, og erum með galopið alla virka daga milli 09:00 og 16:00 nema á föstudögum en þá lokum við klukkan 15:00. Endilega kíktu við.

Sjá VÍS á Ísafirði á korti

Kíktu í kaffi

Vest­firski varn­ar­jaxlinn – Friðrik Þórir þjón­ust­u­stjóri

„Það er gaman að vera kominn aftur á heimaslóðir og ég er fullur tilhlökkunar að kynnast viðskiptavinum okkar enn betur á Vestfjörðum”

Friðrik Þórir, þjónustustjóri VÍS á Vestfjörðum er fæddur og uppalinn á Ísafirði. Hann hefur síðustu ár stundað nám fyrir sunnan á veturna meðfram spilamennsku með Vestra á sumrin en er núna fluttur alfarið til baka.

„Við hjá VÍS leggjum mikið upp úr því að veita afbragðsþjónustu og ég er spenntur að takast á við þær áskoranir sem því fylgir. Ég er að taka við mjög góðu búi af Guðna sem hætti á dögunum en ég fékk að læra af honum í nokkurn tíma, auk þess sem hann kemur reglulega í kaffi til okkar og tekur stöðuna á okkur.“ Segir Friðrik léttur í skapi.

Vestfirski varnarjaxlinn – Friðrik Þórir þjónustustjóri

Hafðu samband og við leysum málið

Sendu okkur línu

Hvort sem erindið varðar tryggingar þínar, upplifun af þjónustu eða starfsemi VÍS.

Kíktu í heim­sókn

Þjónustuskrifstofa okkar á Ísafirði er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09:00 - 16:00 og á föstudögum frá kl. 09:00 - 15:00.

Bjallaðu í okkur eða prófaðu netspjallið

Þjónustufulltrúar svara frá kl. 09:00 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og frá kl. 09:00 til 15:30 á föstudögum.