Hoppa yfir valmynd

Líftrygging hesta

Líftrygging er innifalin í góðhestatryggingu.underlineEf þú ert með góðhestatryggingu færðu greiddar bætur ef hestur deyr af völdum slyss eða sjúkdóms, ef aflífun er ráðlögð af dýralækni eða ef hestur hverfur og finnst ekki aftur innan 4 mánaða þrátt fyrir leit.

Tryggingin bætir

  • Ef hestur deyr af völdum sjúkdóms eða slyss.
  • Ef aflífun er ráðlögð af dýralækni.
  • Ef hestur hverfur og finnst ekki innan 4 mánaða þrátt fyrir leit.

Tryggingin bætir ekki

  • Dauða eða aflífun vegna sjúkdóma sem voru til staðar eða slysa sem urðu áður en tryggingin tók gildi.
  • Dauða eða aflífun vegna sjúkdóma sem hestur fær innan 20 daga frá gildistöku tryggingarinnar.
  • Dauða eða aflífun vegna geðslagsvandamála.
  • Dauða eða aflífun vegna stífkrampa ef hestur er ekki bólusettur á fullnægjandi hátt.
  • Dauða eða aflífun vegna spatts.
  • Aflífun vegna fyrirmæla opinberra yfirvalda.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum hestatryggingar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Skilmálar og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Aðrar upplýsingar