Hoppa yfir valmynd

Afnotamiss­is­trygging hunda

Afnotamissistrygging hundaunderlineer góð trygging fyrir alla sem eiga sérþjálfaðan hund eða hund sem notaður er í kynbótaræktun. Ef hundurinn þinn er tryggður með afnotamissistryggingu færð þú greiddar bætur ef hundur inn tapar eiginleikum sínum til kynbótaræktunar eða sérþjálfaðs hlutverks. Afnotamissistryggingu hunda getur þú einungis keypt með líftryggingu hunda
  • Kauptímabil: Þegar hundur er á aldrinum 8 vikna til 5 ára.
  • Fjárhæð: Fjárhæð afnotamissistryggingar hunda er jafnhá fjárhæð líftryggingar hundsins, að frádregnum 50.000 kr. Fjárhæðin helst óskert þar til hundurinn verður 7 ára en þá lækkar hún um 20% árlega.
  • Gildistími: Þegar hundurinn verður 10 ára fellur tryggingin niður og endurnýjast ekki. Ef greiddar eru út bætur úr afnotamissistryggingu hunds fellur líftrygging hundsins og sjúkrakostnaðartrygging hans niður á tjónsdegi. Ef þú vilt hafa þessar tryggingar áfram í gildi fyrir hundinn verður þú að sækja um þær aftur. Tryggingarnar eru þó einungis í boði ef hundurinn er yngri en 5 ára. Ef ábyrgðartrygging og umönnunartrygging eru til staðar þegar greiddar eru bætur úr afnotamissistryggingu, halda þær gildi sínu.

Kynbótaræktun | Tryggingin bætir

  • Ef hundur tapar frjósemi vegna sjúkdóms í legi, eggjastokkum, blöðruhálskirtli eða eistum.
  • Ef tvær sæðisfrumutalningar með minnst 6 mánaða millibili sýna að hundur sé ófrjór.
  • Ef ekki er lengur hægt að nota hund til ræktunar vegna mjaðmaloss, liðbólgu í mjaðmalið, misvaxtar í olnboga eða liðbólgu í olnboga. Það er skilyrði að hundur hafi verið með afnotamissistryggingu hjá VÍS, samfellt frá að minnsta kosti fjögurra mánaða aldri.
  • Ef tík verður ekki hvolpafull eftir mökun við tvo hunda sem áður hafa verið frjósamir.

Kynbótaræktun | Tryggingin bætir ekki

  • Afnotamissi vegna sjúkdóma sem voru til staðar eða slysa sem urðu áður en tryggingin tók gildi.
  • Afnotamissi vegna tíkur sem hefur þrisvar átt hvolpa.
  • Afnotamissi vegna hunds sem hefur náð 6 ára aldri og aldrei eignast hvolpa.
  • Afnotamissi vegna geðsjúkdóma, atferlisbrests eða skapgerðargalla.
  • Afnotamissi vegna slyss sem varð vegna þess að hundur var bundinn við ökutæki, laus í ökutæki eða yfirgefinn í ökutæki eða á palli tengdu því.

Sérþjálfaðir hundar | Tryggingin bætir

  • Ef hundur tapar sannanlega og til frambúðar eiginleikum sínum sem nauðsynlegir eru svo hann geti sinnt sérþjálfuðu hlutverki sínu vegna slyss eða sjúkdóms.

Sérþjálfaðir hundar | Tryggingin bætir ekki

  • Afnotamissi vegna sjúkdóma sem voru til staðar eða slysa sem urðu áður en tryggingin tók gildi.
  • Afnotamissi vegna hunds sem ekki er lengur hægt að nota í sérþjálfað hlutverk vegna mjaðmarloss, liðbólgu í mjaðmarlið, olnbogaloss, liðbólgu í olnboga, beinklökkva, bein- eða brjóskkvelli.
  • Afnotamissi vegna smitandi lifrarbólgu.
  • Afnotamissi vegna geðsjúkdóma, atferlisbrests eða skapgerðargalla.
  • Afnotamissi vegna slyss sem varð vegna þess að hundur var bundinn við ökutæki, laus í ökutæki eða yfirgefinn í ökutæki.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Þarftu meiri vernd?

Sjúkrakostnaðartrygging hunda

Sjúkra­kostnaðartrygg­ing hunda er góð trygg­ing fyr­ir alla hunda­eig­end­ur. Ef þú ert með þessa trygg­ingu færðu greidd­ar bæt­ur vegna lækn­is­kostnaðar í kjöl­far sjúk­dóms eða slyss.

Lesa meira

Líftrygging hunda

Líftrygging hunda er góð trygging fyrir alla hundaeigendur. Ef þú ert með þessa tryggingu færðu greiddar bætur ef hundur deyr af völdum slyss eða sjúkdóms, ef aflífun er ráðlögð af dýralækni eða ef hundur hverfur og finnst ekki þrátt fyrir leit.

Lesa meira

Umönnunartrygging hunda

Umönnunartrygging hunda er góð trygging fyrir alla hundaeigendur. Ef þú ert með þessa tryggingu færðu greiddar bætur vegna vistunar og gæslu hunds á dýrahóteli ef þú slasast eða veikist svo alvarlega að þú eða fjölskylda þín getið ekki veitt hundinum þá umönnun sem hann þarfnast.

Lesa meira

Ábyrgðartrygging hunda

Ábyrgðartrygging hunda er góð trygging fyrir alla hundaeigendur. Tryggingin bætir kostnað sem getur fallið á þig samkvæmt skaðabótalögum ef hundur í þinni eigu veldur þriðja aðila líkams- eða munatjóni.

Lesa meira

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar

Ert þú með afnotamiss­is­trygg­ingu hunda?

Vantar þig aðstoð? Þarftu að bregðast við tjóni? Þarftu að tilkynna tjón?

Getum við aðstoðað?

Fyrstu viðbrögð við tjóni

Tilkynna tjón
Ert þú með afnotamissistryggingu hunda?
Forvarnir
Heimilið

Heimilisdýr

Algengustu heimilisdýrin eru án efa hundar og kettir. Þau gefa eiganda sinum mikið og eru oft á tíðum stór partur af fjölskyldunni. Góð umhirða þeirra er mikilvæg til að þeim líði vel.
Lesa meira

Ef þú ert með dýratryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

readMoreText

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

readMoreText

Ökutækja­trygg­ingar

Öll getum við gert mistök í umferðinni eða lent í aðstæðum sem leiða til tjóns. Því er mikilvægt að vera með góðar ökutækjatryggingar. 

readMoreText

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

readMoreText

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

readMoreText