Hoppa yfir valmynd

Umönn­un­ar­trygging barna

Ef barnið þitt þarf að leggjast inn á sjúkrahúsunderlinevegna sjúkdóms eða slyss og dvelur þar í 5 daga samfellt eða lengur gætir þú átt rétt á bótum úr umönnunartryggingu barna.

Nánari upplýs­ingar um umönn­un­ar­trygg­ingu barna

  • Bæturnar eru í formi dagpeninga sem greiddir eru fyrir hvern dag frá komudegi dvelji barn, yngra en 16 ára, á sjúkrahúsi í 5 daga samfellt eða lengur.
  • Hámarksbótatími er 180 dagar vegna sama sjúkdóms eða slyss. 
  • Ef bætur hafa verið greiddar og barnið fer aftur á sjúkrahús innan tólf mánaða frá lokum fyrri sjúkrahúsdvalar, vegna sama sjúkdóms eða slyss, áttu rétt á bótum frá komudegi ef bótadagarnir 180 eru ekki fullnýttir.
  • Ef um sjúkdóm er að ræða þarf vottorð læknis að liggja fyrir um hvenær sjúkdómurinn var fyrst greindur áður en bætur eru greiddar .
  • Ef um slys er að ræða þarf vottorð læknis að liggja fyrir um hvenær og hvernig slys átti sér stað áður en bætur eru greiddar.

Umönnunartrygging barna er innifalin í F plús 3 og 4 tryggingunum okkar. Þó er munur á bótafjárhæðum eftir því um hvaða F plús tryggingu er að ræða. Sjá samanburð á F plús tryggingum.

Bera saman F plús
Nánari upplýsingar um umönnunartryggingu barna

Tryggingin greiðir

  • Bætur í formi dagpeninga ef börn yngri en 16 ára dvelja lengur en 5 daga samfellt á sjúkrahúsi vegna sjúkdóms eða slyss.

Tryggingin greiðir ekki

  • Bæt­ur vegna meðfæddra sjúk­dóma eða sjúkdóma sem grein­ast inn­an þriggja mánaða frá fæðingu.
  • Bætur vegna sjúkdóma sem voru til staðar eða slysa sem áttu sér stað áður en tryggingin tók gildi.
  • Bætur vegna sjúkrahúsdvalar eftir að trygging er fallin úr gildi.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum F plús 3-4.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar