Fréttasafn
|07.05.2026
VÍS hæst meðal tryggingafélaga í Sjálfbærniásnum 2026
VÍS hefur hlotið viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærnimálum og er hæst meðal tryggingafélaga í Sjálfbærniásnum 2026. VÍS hækkaði umtalsvert milli ára og er nú efst tryggingafélaga.

Ragnheiður Þorkelsdóttir og Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir
Sjálfbærniásinn mælir viðhorf íslenskra neytenda til frammistöðu fyrirtækja í sjálfbærnimálum og er unninn af rannsóknarfyrirtækinu Prósent, ráðgjafafyrirtækinu Langbrók og stjórnendafélaginu Stjórnvísi.
Ragnheiður Þorkelsdóttir, forstöðumaður upplifunar og vöruþróunar og Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá VÍS tóku á móti viðurkenningunni.
„Við erum rosalega stolt af þessu, enda í fyrsta sinn sem við hljótum þessa viðurkenningu en þetta er í þriðja sinn sem verðlaunin eru veitt. Viðskiptavinir hafa aldrei verið ánægðari og starfsfólkið aldrei ánægðara. Á hverjum einasta degi mætum við til vinnu og hugsum hvernig við getum hjálpað viðskiptavinum að lenda í færri tjónum með virkum forvörnum en líka hvernig við getum minnkað sóun þegar til tjóna kemur því sjálfbærni er ekki átak heldur hluti af því hvernig við störfum dag frá degi“ sagði Ingibjörg Ásdís við tilefnið.