Hoppa yfir valmynd

Bifhjóla­trygging

Skyldutrygging fyrir alla eigendur bifhjóla.underlineTil að auka öryggi og tryggja hag allra er skylda fyrir eigendur bifhjóla að vera með ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda. Fyrir eigendur torfæruhjóla er slysatrygging ökumanns og eiganda valkvæð.

Nánari upplýs­ingar um bifhjóla­trygg­ingu

Við bjóðum upp á tvær leiðir þegar þú tryggir hjólið þitt. Breytingar virka ekki afturvirkt.

  • Leið A: Grunnverð. Ekki er endurgreitt fyrir þann tíma sem skráningarnúmer er innlagt.
  • Leið B: Tvöfalt verð. Við endurgreiðum fyrir þann tíma sem skráningarnúmer er innlagt.

Flestir viðskiptavina okkar sem kaupa bifhjólatryggingu velja leið A. Ef þú ert að tryggja torfæruhjól, t.d. krossara, þá er einungis leið A í boði.

Þú getur fengið afslátt af verði tryggingarinnar ef þú skrifar undir yfirlýsingu um að einungis þú eða maki muni keyra á hjólinu. Afslátturinn er aldurstengdur og hækkar með aldri þess sem tekur trygging­una.

Ef þú kýst meiri vernd bendum við þér á að skoða kaskótryggingu bifhjóla og hlífðarbúnaðartryggingu hér fyrir neðan. Kaskótryggingin bætir tjón á hjólinu sjálfu á meðan að hlífðarbúnaðartrygging bætir tjón á hlífðarbúnaði ökumanns.

Nánari upplýsingar um bifhjólatryggingu

Tryggingin bætir

  • Tjón sem notkun bifhjólsins veldur öðrum hvort sem það er munatjón eða líkamstjón.
  • Tjón sem bifhjólið veldur öðru ökutæki í þinni eigu.
  • Líkamstjón slasist þú eða ökumaður bifhjóls þíns.

Tryggingin bætir ekki

  • Tjón á bifhjólinu sjálfu.
  • Tjón sem notkun bifhjólsins veldur á munum og húsnæði eiganda eða ökumanns bifhjólsins.
  • Líkamstjón sem þú eða ökumaður verðið fyrir ef rekja má slys til meiriháttar gáleysis eða ásetnings ökumanns bifhjólsins.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Þarftu meiri vernd?

Kaskótrygging bifhjóla

Kaskótrygging bifhjóls er valfrjáls viðbótartrygging við bifhjólatryggingu. Tryggingin hefur víðtækt bótasvið og er fáanleg fyrir allar gerðir bifhjóla. Kaskótrygging bætir tjón á bifhjóli vegna áreksturs sem þú eða ökumaður á þínum vegum er valdur að.

Lesa meira

Hlífðarbúnaðartrygging bifhjóla

Algengt er að bifhjólafólk tryggi hlífðarbúnaðinn sinn því ef til tjóns kemur getur verið mjög kostnaðarsamt að endurnýja þennan búnað.

Lesa meira

Keppnisviðauki akstursíþrótta

Í flestum akstursíþróttum er gerð krafa um að keppendur og skráningarskyld ökutæki séu tryggð sérstaklega. Því bjóðum við upp á keppnisviðauka fyrir þau ökutæki sem eru með lögboðna ábyrgðartryggingu hjá VÍS.

Lesa meira

Skilmálar, afslættir og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Afslættir og aðrar upplýsingar

Ert þú með bifhjóla­trygg­ingu?

Vantar þig aðstoð? Þarftu að bregðast við tjóni? Þarftu að tilkynna tjón?

Getum við aðstoðað?

Fyrstu viðbrögð við tjóni

Tilkynna tjón
Ert þú með bifhjólatryggingu?
Forvarnir
Umferð

Bifhjól

Oft er talað um bifhjólafólk sem óvarða vegfarendur þar sem þeir hafa ekki það öryggi sem farþegarými bíls veitir. Í bifhjólaslysum eru því þó nokkrar líkur á alvarlegum meiðslum sér í lagi ef hraði er mikill. Slysarannsóknir sýna að einn af orsakaþáttum slysa er að aðrir vegfarendur átta sig ekki á hraða og fjarlægð mótorhjóls. Það er því mikilvægt að allir temji sér að líta tvisvar og gefa stefnuljós tímalega.
Lesa meira

Ef þú ert með ökutækjatryggingar

gætir þú einnig haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Fjöl­skyldu- og innbús­trygg­ingar

Öll eigum við það sameiginlegt að geta lent í óvæntum uppákomum á lífsleiðinni sem valda tjóni á innbúi eða slysum á fólki. Þess vegna er mikilvægt að þú tryggir fjölskylduna þína vel og hlutina sem þið eigið.

readMoreText

Fast­eigna­trygg­ingar

Oftast eru kaup á fasteign ein stærsta fjárfesting sem við ráðumst í á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að við pössum upp á að eignin sé rétt tryggð til að lágmarka fjárhagslegar afleiðingar eignatjóns.

readMoreText

Líf- og heilsu­trygg­ingar

Enginn býst við því að missa heilsuna eða lenda í alvarlegu slysi en staðreyndin er þó sú að allir geta lent í þeim aðstæðum. Fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar er tryggt með góðum líf- og heilsutryggingum.

readMoreText

Ferða­trygg­ingar

Ertu að skipuleggja ferðalag? Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnuferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferðatryggingar sem henta þér.

readMoreText

Dýra­trygg­ingar

Dýrin þarf að tryggja rétt eins og aðra fjölskyldumeðlimi. Með því að tryggja hestinn þinn, hundinn eða köttinn kemur þú í veg fyrir að lenda í ófyrirséðum kostnaði samhliða því að hafa áhyggjur af velferð dýrsins þíns.

readMoreText