Hoppa yfir valmynd

Afnotamiss­is­trygging reið­hesta­trygg­ingar vegna reiðar

Afnotamissistrygging vegna reiðarunderlineer innifalin í reiðhestatryggingu. Ef þú ert með reiðhestatryggingu færðu greiddar bætur ef hestur er úrskurðaður ónothæfur til reiðar í kjölfar tiltekins sjúkdóms eða slyss. Fullar bætur fyrir afnotamissi fást ef hestur er felldur en hlutabætur ef ákveðið er að hestur skuli lifa.

Tryggingin bætir ef hestur er úrskurðaður ónothæfur til reiðar vegna:

  • Augnsjúkdóma.
  • Beinklökkva, bein- og brjóskkvellis og annarra bein- og/eða brjóskagna.
  • Bólgu í holrúmum höfuðkúpubeins.
  • Brots eða sprungu í beinvef, beineyðingar, hörðnunar eða gigtar.
  • Endurtekinnar hrossasóttar.
  • Flutningaveiki og brjósthimnubólgu.
  • Hófsperru, kölkunar í hófbrjóski, hófbrjóskgangs, hófkrabbameins, sýkingar í hófi, hófsprungu, klofins hófveggjar, hols hófveggjar, lélegs hornefnis, hóftungurots, krabbameins í frumum sem framleiða hornefni í hófvegg.
  • Húðsjúkdóma.
  • Lungnabólgu.
  • Sára.
  • Sýkingar í liðamótum.
  • Viðvarandi hjartagalla.
  • Æxlis.

Tryggingin bætir ekki

  • Afnotamissi vegna sjúkdóma sem voru til staðar eða slysa sem urðu áður en tryggingin tók gildi.
  • Afnotamissi vegna sjúkdóma sem hestur fær innan 20 daga frá gildistöku tryggingarinnar.
  • Afnotamissi vegna geðslagsvandamála.
  • Afnotamissi vegna stífkrampa ef hestur er ekki bólusettur á fullnægjandi hátt.

Vinsamlegast athugaðu að upptalningin hér að ofan er ekki tæmandi. Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum hestatryggingar.
Sé ósamræmi milli upptalningarinnar og skilmálanna þá gilda skilmálarnir.

Skilmálar og aðrar upplýsingar

Tryggingaskilmálar eru samningur þinn við VÍS. Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana vel og áttir þig á því hvað er bætt og hvað er ekki bætt, áður en tryggingin er tekin.

Í upplýsingaskjali er að finna stutta samantekt á helstu þáttum tryggingarinnar. Upplýsingaskjöl eru stöðluð skjöl sem öllum tryggingafélögum ber að birta og auðveldar þannig viðskiptavinum tryggingafélaganna að bera saman tryggingar og sjá hvað þær bæta og bæta ekki.

Aðrar upplýsingar