Neyðarþjónusta
Hægt er að hafa samband við aðalskrifstofu eða einhverja af þjónustuskrifstofum félagsins um allt land til þess að tilkynna tjón og fá leiðbeiningar um fyrstu aðgerðir og ráðstafanir.
Neyðarþjónusta Innanlands
Þjónustuver VÍS veitir einnig þessar upplýsingar í síma 560-5000 alla virka daga frá kl. 08:00 til 17:30.
Enn fremur er hægt að fá upplýsingar með því að senda fyrirspurn á upplysingar@vis.is Sé hins vegar brýn þörf á aðstoð er hægt að hafa samband við neyðarþjónustu félagsins utan opnunartími í síma 560-5070.
Neyðarnúmer lögreglu og slökkviliðs er 112.
Alvarlegt slys eða sjúkdómstilfelli erlendis
Ef ekki næst samband við VÍS og um mjög alvarlegt slys eða sjúkdómstilfelli er að ræða erlendis, er hægt að setja sig í samband við samstarfsaðila VÍS í Kaupmannahöfn, SOS International, en þar er símaþjónusta allan sólarhringinn.
SOS International A/S
Nitivej 6
DK-2000 Frederiksberg
Denmark
Sími +45 7010 5050
Fax +45 7010 5056
Telex 15124 SOS DK
Telegram SOSINTER
netfang: email: sos@sos.dk
veffangweb: www.sos.dk
Nánar um SOS International
SOS International a/s er sérhæft neyðarþjónustufyrirtæki í eigu nokkurra vátryggingafélaga og fleiri aðila á Norðurlöndum. Höfuðstöðvar þess eru í Kaupmannahöfn.
SOS sérhæfir sig í að veita aðstoð í neyðartilvikum og hefur á að skipa þrautþjálfuðu starfsliði sem veitir markvissa aðstoð í alvarlegum veikinda- og slysatilvikum.
Hjá fyrirtækinu starfa reyndir læknar og aðrir sérfræðingar sem kallaðir eru til komi upp atvik, sem ekki verða leyst með öðrum hætti.