Slysatrygging sjómanna skv. siglinga- og skaðabótalögum

Skylt er að tryggja alla sjómenn í vinnutíma á stærri bátum og skipum samkvæmt kjarasamningum.

Tryggingin bætir sjómönnum slys sem þeir verða fyrir í starfi og er fyrir alla fiskimenn og farmenn á skipum yfir 12 tonnum.

Slysatrygging sjómanna er lögboðin og samningsbundin slysatrygging fyrir sjómenn á farskipa- fiskiskipa- eða bátaflotanum.

Þessi trygging er ólík slysatryggingu launþega að því leiti að útgerðarmaður ber hlutlæga bótaábyrgð á því slysi sem skipverji verður fyrir þegar hann er staddur á skipi eða vinnur í beinum tengslum við rekstur skips.

Vinnuslysatrygging

Félagið greiðir:

  • Bætur vegna slyss er vátryggður verður fyrir í starfi hjá vátryggingartaka um borð í skipi því sem tilgreint er í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun og í vinnu í beinum tengslum við rekstur skipsins, ef það leiðir til líkamstjóns.
  • Kostnað vegna nauðsynlegra læknisvottorða í tengslum við vátryggingaratburð þegar þeirra er aflað að beiðni félagsins.

Félagið greiðir ekki bætur vegna slyss sem verður:

  • Beint eða óbeint af völdum hryðjuverka vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar, þ.m.t. vegna sýkla og veira, eða þegar afleiðingar slyss verða meiri vegna framangreindra atriða.

Frítímaslysatrygging

Félagið greiðir bætur vegna slyss er vátryggður verður fyrir í frítíma, ef það leiðir til:

  • Andláts.
  • Varanlegrar læknisfræðilegrar örorku.
  • Tímabundins missis starfsorku.
  • Félagið greiðir kostnað vegna nauðsynlegra læknisvottorða í tengslum við vátryggingaratburð þegar þeirra er aflað að beiðni félagsins.

Félagið greiðir ekki bætur vegna slyss:

  • Í keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers konar íþróttum.
  • Við að klífa fjall, í bjargsigi, hnefaleikum, hvers konar glímu- og bardagaíþróttum, akstursíþróttum, drekaflugi, svifflugi, fallhlífarstökki, froskköfun og teygjustökki.
  • Í flugi, nema vátryggður sé farþegi í áætlunar- eða leiguflugi á vegum aðila sem hefur tilskilin leyfi hlutaðeigandi flugmálayfirvalda.
  • Í handalögmálum eða við þátttöku í refsiverðum verknaði.
  • Af völdum ljósabaða, lækningameðferðar, skurðaðgerðar eða lyfjanotkunar, nema meðferðin sé að læknisráði vegna bótaskylds slyss og gerð á viðurkenndri heilbrigðisstofnun.
  • Af völdum matar- eða drykkjareitrunar.
  • Af völdum eitraðra lofttegunda, nema eitrunin hafi orðið skyndilega og án vilja vátryggðs.
  • Af völdum sýkingar vegna skordýrabits eða stungu.
  • Beint eða óbeint vegna blindu, mikillar nær- eða fjarsýni, sjóndepru, heyrnardeyfðar, lömunar, bæklunar, geðveiki, flogaveiki, heilaáfalls, hjartaáfalls, sykursýki eða annarra alvarlegra sjúkdóma eða veiklunar.
  • Beint eða óbeint af völdum hryðjuverka vegna hvers konar líffræðilegra eða efnafræðilegra áhrifa og/eða eitrunar, þ.m.t. vegna sýkla og veira, eða þegar afleiðingar slyss verða meiri vegna framangreindra atriða.
  • Sem beint eða óbeint hlýst af eða er af völdum jarðskjálfta, eldgoss, skriðufalls, snjóflóðs eða annarra náttúruhamfara.