Ökutækjatryggingar
Nauðsynlegt er fyrir eigendur ökutækja að hafa tryggingar sínar í lagi. Samkvæmt umferðarlögum er skylt að tryggja öll skráningarskyld vélknúin ökutæki með ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda.
Auk lögboðnu trygginganna býður VÍS upp á víðtækar frjálsar tryggingar og ættu viðskiptavinir því að geta tryggt ökutæki sín eins vel og vera má.Lögboðin ábyrgðartrygging
Öllum bifreiðaeigendum er skylt að vera með í gildi lögboðna ábyrgðartryggingu og slysatryggingu ökumanns og eiganda. Meira
Bílrúðutrygging
Bílrúðutrygging er valkvæð trygging sem er seld með lögboðinni ábyrgðatryggingu ökutækis. Vátryggður ber 15% eigin áhættu af heildar tjónskostnaði ef skipta þarf um rúðu. Ekki þarf að greiða eigin áhættu ef gert er við rúðuna. Meira
Brunatrygging
Brunatrygging er fyrir þá eigendur ökutækja sem ekki telja þörf á kaskótryggingu.Meira
Dráttarvélar í landbúnaði
Tryggingin er ætluð eigendum dráttarvéla sem notaðar eru til landbúnaðarstarfa og bætir hún tjón á vélunum.Meira
Dæmi um tjón sem voru bætt
Ekið á kyrrstæðan bíl
Um vetur 2007 var bifreið ekið á kyrrstæðan bíl á bílastæði fyrir utan fjölbýlishús á höfuðborgarsvæðinu. Mikil hálka var á stæðinu og náði ökumaður bílsins ekki að stöðva bifreið sína með þeim afleiðingum að keyrt var inn í hlið bíls sem var kyrrstæður í sínu bílastæði. Ökumaður bifreiðarinnar var með í gildi ábyrgðartryggingu ökutækis sem bætti eiganda kyrrstæða bílsins tjón á bíl sínum.