Farmtryggingar

Þeir atvinnurekendur sem stunda mikinn inn- og eða útflutning ættu að huga að tryggingum fyrir farm sinn. VÍS býður upp á tvenns konar skilmála, allt eftir hversu víðtækir þeir eru, sem taka til tjóna á farmi og vörum í flutningi.

Ábyrgð þeirra aðila sem sjá um sjálfan flutninginn á farmi þínum eða vörum er takmörkunum háð. Undir vissum kringumstæðum, s.s. óveðri eða brotsjó, eru þín verðmæti ekki í ábyrgð og því oft um fjárhagslega áhættu að ræða þegar um flutninga á milli staða er að ræða.

Mjög mikilvægt er því að tryggja farminn og bjóðum við fyrirtækjum upp á farmsamninga sem tekur yfir allan inn- og/eða útflutning viðkomandi fyrirtækis.

Farmtryggingar A

Flestir inn- og útflytjendur ættu að vera með farmtryggingar fyrir farminn sem fluttur er á milli staða. Meira

Farmtryggingar B

Flestir inn- og útflytjendur ættu að vera með farmtryggingar fyrir farminn sem fluttur er á milli staða. Meira

Dæmi um tjón sem voru bætt

Matvæli skemmast

Um mitt sumar 2008 verður tjón á matvælum í flutningi með flutningabíl í Englandi. Bretti sem matvælin stóðu á féllu saman sem gerði það að verkum að þau skemmdust. Eigandi matvælanna var með gildan farmtryggingarsamning við VÍS sem bætti tjón fyrirtækisins.

Þjófnaður á myndavélum

Um mitt sumar 2008 flutti verslun inn vörur með fluti frá Evrópu. Við komuna til Íslands kom í ljós að kassar með myndavélum höfðu verið rifnir upp og þeim stolið. Fyrirtækið var með farmtryggingu í gildi sem bætti tjónið.