Vinnuvélatrygging
Vinnuvélatrygging hentar öllum eigendum vinnuvéla og veitir þeim vernd gegn tjónum á vélunum.
Tryggingin bætir skyndilegt og ófyrirséð tjón á vinnuvél með skráð vinnuvélanúmer m.a. af völdum bruna, sprenginga, áreksturs, hruns eða veltu. Helstu gerðir vinnuvéla sem hægt er að tryggja eru gröfur, jarðýtur, kranar, valtarar, lyftarar, leiktæki og skíðalyftur svo eitthvað sé nefnt.Vátryggingin bætir:
-
Beint tjón á hinu vátryggða af völdum skyndilegs og ófyrirsjáanlegs utanaðkomandi atviks.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón sem orsakast af snöggum hita og/eða raka-breytingum.
- Skemmdir af sliti, göllum í smíði eða gerð, rangri samsetningu, broti eða annarri bilun í eða á vinnuvélinni.
- Skemmdir á málningu eða rispur á húsi eða hlífum vinnuvélarinnar sem eðlilegar mega teljast vegna notkunar vinnuvélarinnar.
- Brot eða skemmdir á ljóskerum eingöngu.
- Skemmdir á rafmagnsleiðslum, mælum eða rafgeymum vegna skammhlaups sem ekki veldur eldsvoða.
- Þjófnað á einstökum hlutum vinnuvélarinnar.
- Tap eða tjón sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta, af áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfa eða samblands þessa hvoru tveggja.
Var efnið hjálplegt?