Peningatrygging

Peningatrygging er ætluð þeim sem eru að flytja peninga á milli staða og veitir þeim vernd gegn ýmis konar tjónum.

Tryggingin bætir tjón á peningum í geymslu eða í flutningi á milli fyrirfram tilgreindra staða. Bætt eru tjón af völdum ráns, innbrots, bruna, vatns eða skyndilegs utanaðkomandi óhapps í flutningi innanlands.

Vátryggingin bætir:

  • Rán á peningaseðlum eða mynt. Það telst rán þegar peningar eru teknir með líkamlegu ofbeldi eða hótun um að beita því þegar í stað, sbr. 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
  • Tjón á peningaseðlum eða mynt í flutningi innanlands af völdum skyndilegra og utanaðkomandi óhappa.
  • Tjón á peningaseðlum eða mynt í þar til gerðum peningaskáp af völdum bruna, vatns og innbrots á vátryggingarstað.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Tjón á öðrum fjármunum en peningaseðlum eða mynt, s.s. ávísunum, greiðslukortanótum, víxlum, skuldabréfum eða öðrum viðskiptabréfum eða verðbréfum. Ávísanir eru þó bættar ef tap þeirra kemur í veg fyrir að krafa fáist greidd.
  • Afleitt eða óbeint tjón.
  • Tap eða tjón sem stafar beint eða óbeint, að öllu leyti eða að hluta, af áhrifum tímaskráningar á starfsemi búnaðar, kerfi eða samblands þessa hvoru tveggja.