Lausafjártrygging
Öll fyrirtæki ættu að huga að því að tryggja sína lausafjármuni og er lausafjártrygging sniðin að þeirri þörf.
Tryggingin bætir tjón á lausafjármunum af völdum bruna. Til viðbótar er hægt að tryggja gegn vatnstjónum, innbrotsþjófnaði sem og óveðurstjónum.Brunatrygging
Eldsvoði, elding, sprenging
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Eldsvoða. Það telst ekki eldsvoði þegar hlutir sviðna eða bráðna ef eldur er ekki laus.
- Eldingar.
- Sprengingar.
Vátrygging bætir ekki tjón:
- Sem verður vegna vinnu með sprengiefni við verklegar framkvæmdir.
- Á raftækjum eða rafeindatækjum er orsakast af skammhlaupi eða öðru rafmagnsfyrirbrigði eingöngu, spani frá rafmögnuðu óveðri, nema af því leiði eldsvoða eða sé afleiðing eldsvoða.
Ketilskemmdir
Vátryggingin bætir tjón:
- Á gufukatli eða háþrýstisuðukerfi vegna yfirþrýstings sem myndast við venjulega notkun tækisins.
Vátryggingin bætir ekki tjón af völdum:
- Þurrsuðu.
Sótfall
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Sótfalls sem verður skyndilega og óvænt frá viðurkenndu kynditæki eða eldstæði.
Vátryggingin bætir ekki tjón af völdum:
- Sóts eða reyks sem safnast hefur smám saman fyrir við notkun.
Loftför
- Vátryggingin bætir tjón af völdum loftfara og hluta sem frá þeim falla.
Slökkvi- og björgunaraðgerðir
Vátryggingin bætir:
- Tjón og kostnað vegna slökkvi- og björgunaraðgerða þegar markmið með ráðstöfunum er að forðast eða takmarka tjón sem fellur undir vátrygginguna og ráðstafanirnar teljast sérstakar og réttlætanlegar.
- Kostnað vegna nauðsynlegs flutnings á hinu vátryggða lausafé í sambandi við bótaskylt tjón.
- Lausafé sem glatast við slökkvi- og björgunaraðgerðir.
Vatnstjónstrygging
Vatn
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Vatns sem óvænt og skyndilega streymir úr leiðslum hússins og á upptök innan veggja hússins.
- Vatns sem flæðir óvænt og skyndilega frá tækjum sem fasttengd eru leiðslum hússins.
- Yfirborðsvatns sem orsakast af skyndilegu úrhelli eða asahláku og vatnsmagn verður svo mikið að frárennslisleiðslur ná ekki að flytja það frá. Hafa skal til hliðsjónar við ákvörðun bótaskyldu hvort almennt eignatjón hafi orðið á tjónssvæðinu af völdum úrhellis- og/eða asahláku er vátryggingar-atburðurinn átti sér stað.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón af völdum utanaðkomandi vatns, svo sem grunnvatns, úrkomu, flóða, sjávarfalla eða vatns frá svölum, þökum, þakrennum eða frárennslisleiðslum þeirra.
- Tjón af völdum vatns sem þrýstist upp úr skolp- eða frárennslisleiðslum eða ef skolpleiðslur geta skyndilega ekki flutt allt það vatn er að berst, þó með þeirri undantekningu ef leiðsla stíflast eða springur innanhúss.
- Tjón af völdum langvarandi raka eða vatnsleka.
- Tjón af völdum byggingarvinnu eða viðhalds, þar með talin vinna við vatnslagnir.
- Tjón af völdum sjávarflóða, flóða frá stöðuvötnum, ám eða lækjum.
Olía og kælimiðlar
Vátryggingin bætir tjón af völdum:
- Olíu eða kælivökva sem streymir skyndilega og óvænt úr olíugeymi, olíueldstæði, kæliskáp eða kælikerfi.
Vátryggingin bætir ekki:
- Tjón á vörum í frysti og kæligeymslum., Þó bætist tjón á vörum sem þannig eru geymdar í smávöru-verslunum ef kælivökvi rennur á þær skyndilega og óvænt.
- Tjón vegna langvarandi olíuleka eða smits.
- Tjón sem verður við áfyllingu olíu- eða kælivökva.
- Tap eða skemmdir á olíu- eða kælivökva.
Innbrotsþjófnaðar- og ránstrygging
Vátryggingin bætir tjón vegna:
- Þjófnaðar og skemmda á hinu vátryggða lausafé við innbrot í húsnæði á vátryggingarstað.
- Skemmda sem verða á húseign í eigu vátryggðs vegna innbrots þar sem hið vátryggða lausafé er með allt að 10% af vátryggingarfjárhæð lausafjár á viðkomandi vátryggingarstað ef bætur eru greiddar samkvæmt skilmálum.
- Ráns þegar vátryggðu lausafé er rænt af vátryggðum eða starfsmönnum hans á vátryggingarstað eða í ferðum innanlands.
- Hámarksbætur nema 10% af vátryggingarfjárhæð en geta þó aldrei orðið hærri en hámarksbætur sem koma fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
- Það telst rán þegar hinir vátryggðu munir eru teknir með líkamlegu ofbeldi eða hótun um að beita því þegar í stað, sbr. 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
- Þjófnaðar úr sýningarskápum eða sýningarkössum innanhúss á vátryggingarstað.
- Hámarksbætur koma fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
Vátryggingin bætir ekki tjón:
- Á rúðum og póstkössum, enda þótt það verði í sambandi við innbrot.
- Á húseigninni sem stafar af eldsvoða enda þótt hann verði í sambandi við innbrot.
Óveðurstrygging
Vátryggingin bætir:
Tjón af völdum óveðurs þegar vindhraði nær 28,5 metrum á sekúndu. Til óveðurstjóna teljast eingöngu tjón á lausafé innanhúss þegar vindur hefur rofið þak, glugga eða aðra hluta hússins. Séu ekki fáanlegar viðurkenndar upplýsingar um vindhraða á tjónsstað er tjónið varð skal hafa til hliðsjónar við ákvörðun bótaskyldu hvort almennt eignatjón hafi orðið á svæðinu af völdum veðurs er vátryggingaratburðurinn átti sér stað.
Var efnið hjálplegt?