Gripatrygging

Gripatrygging er fyrir eigendur hrúta og greiðir hún bætur vegna dauða á gripnum.

Tryggingin bætir hrúta vegna dauða af völdum slysa, veikinda eða ýmissa sjúkdóma.

Vátryggingin bætir:

  • Gripinn vegna dauða af völdum:
    • Slyss, þ.m.t. eldsvoða.
    • Veikinda eða sjúkdóma.
  • Einnig tjón ef hesti er stolið eða hann týnist og finnst ekki innan 120 daga frá því að tilkynning um það barst til félagsins.

Vátryggingin bætir ekki:

  • Slys, veikindi eða sjúkdóma sem hafa í för með sér að vátryggður gripur verður eigi hæfur til sömu notkunar og áður, en lifir þó.
  • Tjón vegna aflífunar vátryggðs grips samkvæmt lögum um smitnæma sjúkdóma eða samkvæmt fyrirmælum opinberra aðila.
  • Vátryggðan grip ef hann er aflífaður án samráðs við dýralækni, nema tafarlausrar aflífunar sé þörf.
  • Útlagðan kostnað vegna læknisaðstoðar, lyfjakaupa eða annan aukakostnað eiganda vegna slyss, veikinda eða sjúkdóms gripsins.
  • Tjón sem verður í flutningi eða sem afleiðing af flutningi á vátryggðum grip með skipum eða flugvélum innanlands, nema annað komi fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.
  • Tjón sem verður þegar gripur er lánaður eða leigður út eða tjón sem er afleiðing af láni eða útleigu, nema annað komi fram í vátryggingarskírteini eða endurnýjunarkvittun.