Húsvagnatrygging

Með hækkandi sól eykst ferðagleði Íslendinga og því nauðsynlegt að hafa ferðavagninn tilbúinn og rétt tryggðan. Húsvagnatrygging er kaskó trygging fyrir ferðavagna.

 

Á undanförnum árum hefur húsvagnaeign Íslendinga aukist mikið og oft á tíðum liggja mikil verðmæti í vögnunum. Fjárhagslegt tjón getur orðið mjög mikið ef ótryggður vagn skemmist eða eyðileggst.

Húsvagnatrygging er kaskótrygging sem bætir tjón sem verða á hjólhýsum, fellihýsum og tjaldvögnum ásamt því að lausafé sem er að staðaldri í húsvagninum er tryggt. Tryggingin bætir meðal annars tjón vegna eldsvoða, áreksturs, veltu, óveðurs og þjófnaðar.

Verðmæti lausafjár tryggingarinnar fer eftir tegund húsvagnsins:
•    Tjaldvagn: 100 þús. kr.
•    Fellihýsi:    200 þús. kr.
•    Hjólhýsi:    300 þús. kr.

Húsvagnatrygging gildir hvort sem vagninn er dreginn af ökutæki, á tjaldsvæði eða  geymslustað til skemmri eða lengri tíma. Sé ferðast frá Íslandi til landa innan Evrópska efnahagssvæðisins og Sviss gildir tryggingin frá brottfarardegi í allt að 92 daga. Auk þess er húsvagninn tryggður í nauðsynlegum flutningi milli áðurnefndra landa.

Sé húsvagn í eftirdragi ökutækis í umferð dekkar ábyrgðartrygging ökutækisins  tjón sem vagninn kann að valda samkvæmt umferðarlögum.

Iðgjald húsvagnatryggingar fer eftir verðmæti húsvagnsins.

Mögulegt að lækka iðgjöld húsvagnatryggingar
Margir geyma húsvagna inni yfir vetrartímann og þurfa því ekki tryggingu vegna foktjóns á meðan.
VÍS býður þeim sem eru með húsvagnatryggingu að undanskilja foktjón úr bótasviði hennar frá 1. október – 30. apríl ár hvert. Með því lækkar grunniðgjald húsvagnatryggingarinnar um 20%. Aðrir þættir tryggingarinnar verða óbreyttir árið um kring.

Viðskiptavinum sem vilja lækka iðgjöld sín með þessum hætti er bent á að senda tölvupóst á husvagn@vis.is og óska eftir því að undanskilja vernd gegn foktjónum yfir vetrartímann og fá afsláttinn. Einnig þarf að láta nafns og kennitölu getið.

Starfsmenn þjónustuvers VÍS eru ávallt reiðubúnir til aðstoðar í síma 560 5000.

Almennar forvarnir um húsvagna má sjá hér ásamt öðrum umferðarforvörnum.

 

Language


Útlit síðu: