Stefna VÍS
VÍS leggur sitt að mörkum til að koma í veg fyrir vátryggingasvik Vátryggingasvik er málaflokkur sem kostar íslenskt samfélag verulegar fjárhæðir á hverju ári. Kynntu þér stefnu VÍS varðandi vátryggingasvik.
Stefna VÍS vegna vátryggingasvika
Samkvæmt erlendum rannsóknum og könnunum má áætla að um 10% af tjónagreiðslum fari í greiðslur vegna vátryggingasvika.Vátryggingasvik varða ekki einungis þann sem svíkur heldur hafa þau áhrif á alla þá sem kaupa vátryggingar. Vátryggingasvik leiða til aukins kostnaðar fyrir vátryggingataka með hærri iðgjöldum.
Vátryggingasvik eru almennt skilgreind sem sú háttsemi að fá vátryggingafélag, með saknæmri blekkingu, til að greiða vátryggingarbætur sem viðkomandi á ekki rétt á, t.d. með sviðsetningu tjóns eða með því að ýkja bótakröfu.Vátryggingasvik eru talin til fjársvika, sbr. 248. gr. hegningarlaga nr. 19/1940.
Stefna VÍS
- VÍS er leiðandi vátryggingafélag á íslenskum markaði og leggur áherslu á siðferði og heiðarleika í viðskiptum.
- VÍS leggur sitt að mörkum til að draga úr vátryggingasvikum til hagsbóta fyrir viðskiptavini sína, félagið sjálft og fyrir samfélagið í heild.
- VÍS telur það vera siðferðilega skyldu sína að tilkynna/kæra vátryggingasvik sem félagið fær vitneskju um.
- VÍS leggur áherslu á að sérhver einstaklingur tilkynni um vátryggingasvik, ef hann hefur upplýsingar um slík tilvik.
- VÍS mun viðhafa fullan trúnað gagnvart þeim einstaklingi sem veitir félaginu upplýsingar um vátrygginga-svik nema brýnir rannsóknarhagsmunir krefjist annars.
- VÍS mun hafa frumkvæði að því að upplýsa samfélagið um vátryggingasvik og afleiðingar þeirra.
Var efnið hjálplegt?