Útilega
Á sumrin gera bæði íslenskir og erlendir ferðamenn víðreist um landið og eru útilegur stór liður í ferðalagi margra þeirra.
Með góðum undirbúningi aukast líkurnar til muna á að ferðin gangi vel og ekkert óvænt komi uppá.

Hugaðu að:
- Ferðaáætlun.
- Akstri þar á meðal færð, veðri, farangri og búnaði bílsins.
- Gististöðum.
- Gönguleiðum og öryggi þeirra.
- Bensínafgreiðslustöðum.
- Hlýjum og skjólgóðum utanyfirfatnaði.
- Góðum skóm.
- Korti og fjarskiptatækjum.
- Sjúkrakassa.
- Öryggi við notkun gas- og kolagrilla.
Gististaðir
Leyfilegt er að tjalda við aðalveg og á óræktuðu landi yfir nótt svo fremi sem ekki er gist lengur en í þrjár nætur.
Leyfi landeigenda þarf að fá ef:
- Tjalda á nærri húsi.
- Tjalda á fleiri en þremur tjöldum saman.
- Tjalda á á ræktuðu landi.
Á www.camping.is, www.tjald.is og www.ferdalag.is er að finna upplýsingar um tjaldstæði vítt og breytt um landið. Kynnið ykkur reglur hvers og eins staðar og farið eftir þeim. Skiljið jafnframt við svæðið eins og þið viljið koma að því.
Forðast á allan óþarfan akstur á tjaldsvæðum. Ef aka þarf er mikilvægt að fara með gát og muna að tjaldsvæðið er leikvöllur barna. Aka þarf mjög varlega og ef þarf að bakka er mikilvægt að einhver fullorðinn standi fyrir aftan og tryggi að enginn sé þar.
Börnum finnst nýtt umhverfi spennandi. Kynnum það fyrir börnunum og fræðum þau um mögulegar hættur. Kennum þeim að þekkja kennileiti ef þau fá að fara ein um til að þau villist ekki.