Sund

Almenningslaugar er mun víðar að finna hér á landi en í mörg öðrum löndum. Sundkunnátta er líka með ágætum enda hefur sund verið kennt markvisst til fjölda ára í grunnskólum landsins.

 

En því miður hafa drukknanir verið á hverju ári hér á landi. Drukknanir sem verða í sundlaugum, ám, vötnum og sjó. Síðustu tvo áratugi hefur þessum slysum fækkað mikið en enn er nokkuð í land til að ná þeim árangri að hægt sé að útrýma þeim. Til að svo megi verða þarf hver og einn að huga að öryggi sínu og sinna nánustu og vera skrefinu á undan í þeim efnum.