Forvarnarstefna VÍS
VÍS er leiðandi tryggingarfélag á sviði forvarna. Forvarnir eru sýnilegur hluti af starfseminni og hafa þann tilgang að fækka slysum og tjónum meðal viðskiptavina og í samfélaginu í heild.
Forvarnarstefna VÍS
Allir starfsmenn VÍS eru forvarnarfulltrúar í þjónustu sinni við viðskiptavini. Forvarnir eru hluti af fyrirtækjamenningu VÍS og mikilvægur hlekkur í starfsemi félagsins. Forvarnir eru sýnilegur hluti af starfseminni og hafa þann tilgang að fækka slysum og tjónum meðal viðskiptavina og í samfélaginu í heild.
Atriði eins og að læsa húsum sínum, skrúfa fyrir vatn og slökkva á kaffivélinni er það sem flestir hafa í huga daglega. Engu að síður er svo margt óvænt sem getur komið fyrir og því þarf að gera ráðstafanir til að vernda fjölskylduna, heimilið og atvinnureksturinn. Þetta þarf ekki að vera erfitt né kostnaðarsamt en ávinningurinn er gríðarlegur. Helstu hættur sem steðja að eru vatnstjón, brunatjón, slysatjón og innbrot.
VÍS hefur frá fyrstu tíð lagt mikla áherslu á forvarnir í því skyni að koma í veg fyrir hvers konar slys og tjón.
Aðaláherslurnar eru:
- Fræðsla og upplýsingastarfsemi.
- Samfélagslegar aðgerðir til tjónavarna.
- Öryggiseftirlit og beinar fyrirbyggjandi aðgerðir hjá viðskiptavinum.
- Ráðgjafarstarfsemi og þjónusta á sviði forvarna og öryggismála.
VÍS í farabroddi
VÍS var fyrst tryggingafélaga til þess að ráða sérstakan forvarnafulltrúa sem eingöngu vinnur á sviði forvarna og öryggismála. Nú í dag eru tveir starfsmenn sem eru sérfræðingar í forvörnum hjá félaginu, í einstaklingsforvörnum og fyrirtækjaforvörnum. Helstu verkefni VÍS á sviði forvarna hafa verið ýmiss konar ráðgjafarstarfsemi til einstaklinga og fyrirtækja. Fræðslustarfsemi á sviði umferðaröryggismála, brunavarna, þjófavarna, vatnstjónavarna og almennra slysavarna hafa skipað stóran sess, auk útleigu á barnabílstólum sem taldir eru með þeim öruggustu sem völ er á í heiminum í dag.