Þjónustuver VÍS : 560-5000
Opið mánudaga - föstudaga frá kl. 8:00-17:00
Þægilegt að leysa málin símleiðis
Í þjónustuverinu er einstaklingum veitt öll þjónusta sem unnt er að veita í gegnum síma. Þar má nefna upplýsingar um fjölskyldu- og heimilistryggingar, bílatryggingar, bruna- og húseigendatryggingar og ferðatryggingar. Einnig má nefna þjónustu Lífís, t.d. líf- og sjúkdómatryggingar. Með þessu spara viðskiptavinir sér sporin og eiga greiðan aðgang að þægilegri þjónustu.Hvers vegna þjónustuver?
Viðskiptavinir í dag gera kröfur um hraða, öryggi og góða þjónustu. Um leið og viðskiptavinur er kominn í samband við þjónustuverið sinnir einn ákveðinn starfsmaður erindi hans.Lengri afgreiðslutími í þjónustuveri
Við trúum því að viðskiptavinir okkar vilji eiga möguleika á að sinna tryggingarmálum sínum utan hefðbundins skrifstofutíma. Þjónustuverið sinnir því símaþjónustu mánudaga - föstudaga frá 8:00 til kl. 17:00.En hvað með tjónin?
Starfsmenn þjónustuversins taka símleiðis við tilkynningum um tjón og veita upplýsingar um hvað viðskiptavinurinn á að gera. Að auki er neyðarsími eignatjóna opinn allan sólarhringinn, símanúmerið er 560-5070.Þægileg samskipti
Við vonum að samskipti þín við VÍS séu þægileg og gangi greiðlega fyrir sig. Ef þú hefur athugasemdir við þjónustu VÍS eða vilt koma með ábendingar um eitthvað sem má betur fara, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á upplysingar@vis.is. Við tökum slíkum ábendingum fagnandi og það hjálpar okkur að hafa þjónustuna í samræmi við þarfir viðskiptavina.- Var efnið hjálplegt?
- Já
- Nei
- Gera athugasemd?
