Forvarnir

Forvarnir snúa að því að verjast óhöppum og draga úr hættu á tjóni. Til þess að tryggja öryggi þarf að hafa þekkingu og búnað til að bregðast við hugsanlegum hættum.

Táknmynd fyrir Forvarnarstefna VÍS

Forvarnarstefna VÍS

VÍS hefur verið leiðandi tryggingarfélag á sviði forvarna.

Táknmynd fyrir Frítími

Frítími

Frítímaslys eiga sér stað í frítíma fólks en ekki í skipulögðum íþróttum, vinnu, umferðinni eða á heimilum fólks. Slysin verða því víða og ástæður þeirra eru fjölmargar, en algeng orsök er að dottið er.

Táknmynd fyrir Heimilið

Heimilið

Heimilið er griðastaður fjölskyldunnar og þar vilja allir vera öruggir. Þrátt fyrir það eru slys og tjón þar algeng en með árvekni má í mörgum tilfellum fyrirbyggja þau með litlum kostnaði.

Táknmynd fyrir Náttúruhamfarir

Náttúruhamfarir

Náttúruhamfarir eru nokkuð algengar á Íslandi. Eldgos, jarðskjálftar, óveður og flóð eru nokkuð sem allir Íslendingar þekkja. Einna helst koma eldingar landsmönnum á óvart.

Táknmynd fyrir Umferð

Umferð

Kostnaður vegna umferðarslysa er mikill hér á landi. Margir þættir hafa áhrif á hann. Ef samfélagslegur og persónulegur kostnaður er áætlaður, er gert ráð fyrir að umferðarslys hér á landi kosti 20-30 milljarða á ári hverju. Forvarnir eru gríðarlega mikilvægar og hver og einn getur lagt mikið af mörkum til að fækka slysum.